Ekki viðrað til upptöku
Það hefur ekki viðrað vel til upptökuheimsókna það sem af er árinu og mér hefur aðeins tekist að heimsækja einu kirkju og bæta á vefinn. Til þess að hægt sé að taka upp klukknahringingar þarf [...]
Kirkjuklukkurnar áfram í borginni
Hávaði frá kirkjuklukkum er ekki umhverfisvandamál en upp geta komið einstök tilvik þar sem ástæða er til að fara fram á að tilhögun hringinga sé breytt. […]
Reykjavíkurborg skoðar klukknahringingar
Í Fréttablaðinu í dag er sagt frá því að Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hafi vísað tillögu um notkun kirkjuklukkna til umsagnar hjá Heilbrigðiseftirlitinu. Ástæðan er tillaga á vefnum Betri Reykjavík þar sem lagt er til [...]
Kirkjuklukkum Grafarvogskirkju hringt gegn einelti
Í gær, laugardaginn 8. nóvember, var fjölmörgum kirkjuklukkum hringt til að minna á baráttuna gegn einelti. Var klukkunum hringt í 7 mínútur, eina mínútu fyrir hvern dag vikunnar. Grafarvogskirkja var ein þeirra kirkna sem tók [...]
Klukkum hringt gegn einelti
Laugardagurinn 8. nóvember er helgaður baráttunni gegn einelti og kynferðisofbeldi frá vöggu til grafar. Þann dag er hvatt til þess að bjöllum verði hringt og flautur þeyttar kl. 13:00 til þess að vekja athygli á [...]
Brotin klukka á biskupsstóli
Í Morgunblaðinu í dag er viðtal við Sr. Kristján Val Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti. Þar ræðir hann um bókasafn Skálholtsdómkirkju sem og brotna kirkjuklukku. Ómögulegt hefur reynst að gera við klukkuna sökum fjárskorts. Sjá nánar: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/10/04/brotin_klukka_a_biskupsstoli/
Kirkjuklukkur hringja inn flugeldasýningu
Í kvöld fór fram Menningarnótt í Reykjavík. Að þessu sinni voru það kirkjuklukkur 23 kirkna um land allt sem hringdu inn flugeldasýninguna. Um var að ræða nýtt dansverk, "Töfra", eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Kirkjuklukkur, í [...]
Á slóðir Skógarmanna
Fimmtudaginn 3. júlí heimsótti undirritaður Vatnaskóg. Þar var í gangi fjörugur flokkur 9 - 11 ára stráka og mikið um að vera þrátt fyrir rigningu. Í Vatnaskógi er falleg kapella sem, í mínum huga, er [...]
Heimsókn í Gilsbakkakirkju
Í dag, 2. júlí, heimsótti undirritaður Gilsbakkakirkju í Hvítársíðu. Þar tók Ólafur Magnússon, bóndi á Gilsbakka og hringjari, á móti mér. Hann hringdi tveimur fallegum klukkum fyrir mig en báðar klukkurnar eru frá 18. öld. [...]
Kópavogskirkja á Sjómannadaginn
Á Sjómannadaginn, 1. júní 2014, heimsótti undirritaður Kópavogskirkju. Þar eru tvær klukkur sem settar voru upp árið 1963. Þeim var handhringt til ársins 1989 þegar rafstýring var sett upp. Og þá hefur þurft hreystimenni til [...]