Verkefnið Kirkjuklukkur Íslands gengur út á að skrásetja allar kirkjuklukkur á Íslandi. Saga klukkna í hverri kirkju er skráð, gerð þeirra og uppruni. Þá eru reglur/hefðir um notkun klukknanna skráð, allar samsetningar hringinga teknar upp og klukkurnar ljósmyndaðar. Í kjölfarið ert upplýsingarnar birtar hér á vefnum kirkjuklukkur.is. Tilgangurinn er að gera upplýsingar um allar kirkjuklukkur á Íslandi aðgengilegar á einum stað.

Lýsing verkefnis

Allar kirkjur á Íslandi sem hafa klukkur verða heimsóttar. Fyrir hverja heimsókn er haft samband við kirkjuvörð eða annan forsvarsmann kirkjunnar til þess að aðstoða við skrásetningu gagna og hringingu klukkna. Skv. vefsíðunni kirkjukort.net eru kirkjur og kapellur á Íslandi 375 talsins. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hve margar þeirra hafa klukkur.

Eftirtalin atriði eru skrásett:

  • Saga klukknanna og uppruni
  • Fjöldi klukkna, þyngd og tónn
  • Reglur/hefðir um notkun klukknanna. Hvernig eru þær notaðar við messu, útfarir, brúðkaup, stórhátíðir og önnur tilefni?
  • Ljósmyndir teknar af klukkunum og umgjörð þeirra.
  • Ljósmynd tekin af kirkjunni.
  • Allar hringingar klukknanna eru teknar upp (sbr. ríkjandi hefðir í kirkjunni)

Eftir heimsóknir eru upplýsingar teknar saman og vistaðar á vefsíðunni kirkjuklukkur.is.

Gert er ráð fyrir því að söfnun gagna taki nokkur ár og munu upplýsingar því birtast jafnt og þétt á vefsíðunni eftir því sem þær berast.

Tæknibúnaður

Við framkvæmd verkefnisins er notast við myndavél og hljóðupptökutæki sem vista upplýsingar á minniskortum. Upplýsingar verða svo færðar yfir tölvu og harðan disk til varðveislu.

Vefsíðan er unnin í WordPress.

Biskupsstofa

Verkefnið er unnið í samstarfi við og með leyfi Biskupsstofu.

Umsjón verkefnis

Guðmundur Karl Einarsson
Guðmundur Karl EinarssonFlugumferðarstjóri
Sími: 551 2604 / 690 4005
Netfang: gummi@gummi.is

Bakgrunnur

Undirritaður hefur starfað við æskulýðsstarf innan Þjóðkirkjunnar og KFUM og KFUK síðan 1997. Þá sem leiðtogi í 10-12 ára starfi KFUM og KFUK í Digraneskirkju (1997-2011). Á árunum 2005-2010 sem leiðtogi í æskulýðsfélaginu Meme í Digraneskirkju.

  • í stjórn Skógarmanna KFUM 2008-2010.
  • Í stjórn KFUM og KFUK á Íslandi 2009-2013.
  • Í stjórn Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar (ÆSKÞ) 2012-2018.
  • Í stjórn Vinagarðs leikskóla KFUM og KFUK 2016-2022.
  • Í sóknarnefnd Lindasóknar frá 2017.

Undirritaður hefur tekið að sér ýmis verkefni innan Þjóðkirkjunnar. Má þar nefna umsjón tæknimála á vormótum ÆSKR, seta í landsmótsnefnd fyrir Landsmót ÆSKÞ, skipulagning BÆNARÝ margmiðlunarguðsþjónusta, uppsetning SMS kerfis Biskupsstofu og sæti í ritstjórn æskulýðssöngbókarinnar Guð í þinni hendi sem kom út árið 2010. Þá hefur undirritaður sett upp vefsíður fyrir fjölmargar kirkjur og félagasamtök auk þess að bjóða kirkjum upp á skráningarþjónustu fyrir fermingarfræðslu.

Undirritaður starfar sem flugumferðarstjóri hjá Isavia ANS.