Staðarkirkja á Reykjanesi stendur rétt norðan við Reykhóla. Kirkjan var reist árið 1864 og er í umsjón Þjóðminjasafns Íslands. Í turni kirkjunnar eru tvær klukkur, önnur meðalstór en hin lítil. Stærri klukkan er nokkuð skrautleg og með áletruninni STØBT AF P PETERSEN KIOBENHAVN ANNO 1804 en minni klukkan er ómerkt. Fáar athafnir eru í kirkjunni og enginn fastur hringjari.

Upptökur

Myndband

Myndir

Heimildir

Upptaka og hringjari: Guðmundur Karl Einarsson
21. júlí 2016
Aðstoð: Helga Jónsdóttir og Sigfríður Magnúsdóttir